Hola hola ég náði öllum
prófunum jihú.. meðaleinkuninn yfir veturinn var um 8 þannig að
ég er bara sátt.. allt á spænsku og búið að ganga miklu betur en
ég bjóst vid
Minns fór í
sumarklippingu í gær og Margrét missti sig með skærin og ég er
næstum sköllótt!! Nei segi það nú kannski ekki en langt síðan ég
var með sona stutt. Voða þægilegt í hitanum að vera laus við
lubbann
Mamma og þau eru að koma á
morgun þannig að næsta vika verður tekin í turista rölt, borða úti
og hafa það gott.
Verd samt ad drífa mig í sólbad til ad vera nú
eitthvad brún þegar þau koma hehe Á laugardagskvöldið er svo sant
Juan en þetta er eitthvad sona eins og gamlárskvöld heima..
flugeldar og læti..ég hef aldrei verið hér á þessum degi..
spurning hvað við gerum
Loftkælingin
okkar kom í gær og þvílíkt skrímsli.. þetta er sko huges og ég var
ekki beint sátt.. Toni fór og keypti þetta í búð sem vinur hans
vinnur en ég var búin að sjá miklu minni í öðrum búðum! ekkert
vodalega mikid pláss fyrir þetta ferlíki…. Een það kælir og
það er fyrir öllu
Svo megiði alveg vera duglegri að kvitta fyrir ykkur mín kæru..
einhver leti undanfarið í kvittinu og ég sem er búin að vera svoo
dúleg að blogga
adios